Lýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 - Akraneshöfn
28.01.2018
Skipulagsmál
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 23. janúar 2018 að auglýsa lýsingu á fyrirhugaðri breytingu aðal- og deiliskipulags Akraneshafnar, skv. 1. mgr. 36 gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst m.a. í eftirfarandi:
- Nýjum hafnarbakka
- Lenging á brimvarnargarði
- Öldudeyfing milli Aðalhafnargarðs og Bátabryggju
Lýsingin verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18 og á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is. Ábendingum og athugasemdum við lýsinguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 15. febrúar 2018 í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is.