Fara í efni  

Malíbó opnar á Aggapalli í sumar

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri og Rakel Mirra Njálsdóttir, eigandi Malíbó, við undirritun samnin…
Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri og Rakel Mirra Njálsdóttir, eigandi Malíbó, við undirritun samnings.

Bætast mun í veitingaflóruna á Akranesi í sumar en bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 29. febrúar s.l. að leigja út húsið á Aggapalli til Rakelar Mirru Njálsdóttur. Rakel ætlar að opna þar nýjan stað, Malíbó, og selja léttar veitingar. 

"Malíbó er staður sem verður opnaður á Aggapalli í sumar þar sem boðið verður upp á Boozt, skálar og beyglur til sölu. Minn draumur er að geta boðið Akurnesingum og gestum Akraness upp á hollari kost í mat og drykk í fallegu umhverfi við sjóinn og sandinn. Ég vona að með þessu muni færast enn meira líf og fjör á svæðið þar sem þegar er fjölbreytt afþreying í boði. Ég hlakka gríðarlega mikið til að takast á við þetta verkefni og vona innilega að þessu verði vel tekið af þeim sem eiga leið um strandlengjuna í sumar. Einnig má alltaf gera sér ferð og koma og heimsækja okkur á Malíbó" segir Rakel Mirra Njálsdóttir, eigandi Malíbó.

"Við erum mjög ánægð með að þetta verkefni á Aggapalli í sumar er að raungerast og afskaplega stolt af því að geta með þessum samningi stutt við frumkvöðlastarfsemi i sveitarfélaginu. Við vonum að veitingasölunni verði vel tekið af íbúum og öðrum sem njóta góðs af þessari viðbót við lífið við Langasand í sumar", segir Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00