Akraneskaupstaður tók þátt í Mannamóti
26.01.2023
Akraneskaupstaður tók þátt í Mannamóti - Markaðsstofu landshlutanna 2023, sem fram fór fimmtudaginn 19. janúar í Kórnum í Kópavogi.
Mannamót er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og var Akraneskaupstaður með bás með kynningarefni um áhugaverða staði í bæjarfélaginu.
Mannamótið er góður vettvangur til að kynna það sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða og mynda tengslanet við ferðaþjónustuaðila fyrir komandi ferðasumar.