Matvælasjóður er með opið fyrir umsóknir til 21. september
15.09.2020
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt.
Umsóknarfrestur í Matvælasjóð er til og með 21. september.
Atvinnuráðgjafar SSV bjóða upp á ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna til Matvælasjóðs.
Nánari upplýsingar er að finna hér á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.