Fara í efni  

Móttaka nemenda frá Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum í Suður-Maine

Hópmyndataka fyrir utan frístundamiðstöðina.
Hópmyndataka fyrir utan frístundamiðstöðina.

Þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn tók Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á móti hópi háskólanemenda frá Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum í Suður-Maine í Portland Bandaríkjunum. Nemendurnir voru komnir hingað á Akranes til að fá kynningar á bæjarfélaginu í tengslum við námskeið sem þau sitja á um þessar mundir. Fyrir hópnum fóru Hrefna Sigríður Briem forstöðumaður viðskipta- og hagfræðideildar HR, Richard Bilodeau og Heidi Parker frá Háskólanum í Suður-Maine.  

Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, í samstarfi við Háskólann í Suður-Maine (USM) í Bandaríkjunum, heldur 10 daga sumarskóla um nýsköpun, með áherslu á ferðaþjónustu og haftengda nýsköpun, um þessar mundir. Háskólarnir tveir skrifuðu undir samning á síðasta ári um samstarf í kennslu og rannsóknum og er sumarskólinn liður í því samstarfi. Sumarskólinn er opinn öllum nemendum HR í grunnnámi sem hafa nægt frjálst val námskeiða í sínu námi. Um fimmtán nemendur frá Háskólanum í Suður-Maine sækja námskeiðið sem er einnig opinn nemendum úr HR og öðrum háskólum.

Tekið var á móti hópnum í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll og fengu þau kynningar frá Akraneskaupstað um Akranes, ferðaþjónustu, krabbaveiðar og heilsueflandi samfélag. Hópurinn vinnur um þessar mundir að verkefnum í tengslum við kynningarnar og mun kynna fyrir fulltrúum kaupstaðarins eftir helgi. Verkefnin munu vonandi nýtast Akraneskaupstað í framtíðarskipulagningu með áðurnefnd viðfangsefni.

Að lokinni móttöku gerði hópurinn sér ferð í Guðlaugu og í sjóinn enda veðrið dásamlegt.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00