Nýtt fimleikahús reist á Vesturgötu
Meirihluti fulltrúa bæjarráðs Akraness samþykkti á fundi sínum þann 16. mars síðastliðinn að fimleikahús verði reist við Íþróttahúsið á Vesturgötu og vísuðu ákvörðun ráðsins til samþykktar í bæjarstjórn. Fyrir lágu umsagnir skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs og var meirihluti fulltrúa þeirra ráða samþykkur staðsetningunni.
Bæjarráð lagði einnig til, samhliða ákvörðun um byggingu fimleikahúss á Vesturgötu, að stofnaður yrði starfshópur sem myndi hafa það hlutverk að marka stefnu í framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum. Höfð verði til hliðsjónar sú mikla vinna sem hefur verið unnin af bæjaryfirvöldum og hagsmunaaðilum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja fyrir næsta fund ráðsins tillögu að erindisbréfi starfshópsins.