Opið hús hjá Slökkviliðinu á 112 deginum
06.02.2018
Sunnudaginn 11. febrúar frá kl. 13-15 verður opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar af tilefni 112 dagsins. Fróðleg og skemmtileg dagskrá er í boði, meðal annars kynning á starfi Slökkviliðsins og Björgunarfélags Akraness. Lögreglan og sjúkraflutningsmenn verða á staðnum sem og einnig Rauði Krossinn sem mun kynna þjálfun í skyndihjálp.
Húsið er öllum opið og eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt í dagskránni.