Opnun íþróttamannvirkja á Akranesi
Tilslakanir á samkomutakmörkunum taka gildi að miðnætti 15. apríl og í samræmi við það opna íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar aftur með þeim takmörkunum sem tilgreindar eru í nýrri reglugerð sóttvarnalæknis.
- Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum
- Jaðarsbakkalaug
- Akraneshöll
- Guðlaug, heit laug við Langasand
- Íþróttahúsið við Vesturgötu
- Bjarnalaug
- Þreksalurinn á Jaðarsbökkum
Þreksalurinn á Jaðarsbökkum opnar á morgun fimmtudag 15. apríl kl 6:00, það er þó með þeim annmörkum sem sóttvarnarreglur leyfa.
Tuttugu manna hámark í hverju sóttvarnarhólfi og þarf að viðhalda tveggja metra reglu, ekki má fara á milli sala.
Allir verða að skrá sig og fá miða í afgreiðslu og hver og einn fær að æfa í 60 mín í stóra þreksalnum. Að lokinni æfingu þarf að skila miðanum aftur í afgreiðslu.
Ábyrgð á sóttvörnum er ávallt á höndum hvers og eins. Passað verður upp á sótthreinsun á tækjum eftir hverja notkun eins og áður.
Við gerum þetta öll saman!