Óskað er eftir tillögum um bæjarlistamann Akraness árið 2016
18.05.2016
Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar ákvað á 28. fundi sínum þann 17. maí sl. að óska eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2016.
Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní nk. við hátíðlega athöfn. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann, en reglurnar má sjá hér. Frestur til að skila inn tillögu er til og með 31. maí nk.
Tillögur eru sendar inn rafrænt, hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar