Fara í efni  

PEERS námskeið í félagsfærni fyrir 11-15 ára krakka

Frá 24. október 2018 til 13. febrúar 2019 verður haldið PEERS námskeið í félagsfærni fyrir 11-15 ára krakka og foreldra/forráðamenn þeirra.

Námskeiðið fer fram vikulega í Þorpinu á miðvikudögum frá kl. 17:00-18:30. Aðeins tíu krakkar geta skráð sig og fer skráning fram á netfangið dagny.hauksdottir@brekkubaejarskoli.isLeiðbeinendur námskeiðsins eru Berglind Ósk Jóhannesdóttir þroskaþjálfi, Berta Ellertsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Lilja Lind Sturlaugsdóttir þroskaþjálfi, Ruth Jörgensdóttir Rauterberg þroskaþjálfi og Sigríður Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi. Leiðbeinendur hafa allir réttindi til að kenna á PEERS námskeiði í félagsfærni.

Á PEERS námskeiði í félagsfærni er markmiðið að:

  • Barnið læri að eignast vini og halda þeim.
  • Að foreldri/forráðamaður læri að styðja barnið í að finna sér viðeigandi vini.
  • Að foreldri/forráðamaður læri leiðir til að styrkja færni barnsins við að eignast vini.
  • Að foreldri/forráðamaður læri leiðir til að efla félagslegt sjálfstæði barnsins.

Inntak PEERS námskeiðsins er eftirfarandi: 

  • Góð samtalsfærni 
  • Viðeigandi notkun samfélagsmiðla 
  • Hvernig á að byrja og ljúka samtali við jafnaldra 
  • Að velja vini  
  • Að nota húmor á viðeigandi hátt 
  • Að koma inn í hópsamtal 
  • Að yfirgefa hópsamtal 
  • Að skipuleggja samveru með vinum 
  • Að vera góður félagi 
  • Að bregðast við stríðni og einelti 
  • Að bæta ímynd sína 
  • Að takast á við rifrildi og ágreining við vini 
  • Að takast á við umtal og kjaftasögur 

Umsóknarfrestur er til og með 28. september næstkomandi og kostar námskeiðið kr. 30.000. Vakin er athygli á því að hægt er að nýta tómstundastyrk Akraneskaupstaðar á námskeiðið. Þegar umsóknarfrestur er liðinn verður haft samband við alla sem skráðu sig til að kanna hvort námskeiðið henti barninu og út frá því raðað í hópinn.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00