Fara í efni  

Samið við fyrirtækið Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi

Við undirritun samnings.
Við undirritun samnings.

Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi. Framkvæmir hefjast nú í ágúst og er áætluð verklok í desember 2019. Alls bárust fimm tilboð í verkið sem var opnað þann 31. maí síðastliðinn og var Spennt ehf. lægstbjóðandi með samtals 607 m.kr.  

Nýtt fimleikahús verður byggt við hlið íþróttahússins á Vesturgötu. Um er að ræða nýbyggingu á fimleikasal sem verður 1640 m² að stærð. Í salnum verður steypt áhorfendastúka en rými undir henni verður síðan nýtt undir sturtur fyrir núverandi búningsklefa sem fyrir eru í þróttahúsinu. Búningsklefar í eldri byggingu íþróttahússins verða endurnýjaðir sem og einnig anddyri og kennslurými þar sem frístund Brekkubæjarskóla hefur verið starfandi. Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki í þaki, þakeiningum, lögnum, loftræstingu, raflögnum, frágangi að innan og að utan og lóðargerð umhverfis húsið.

„Fimleikafélag Akraness telur á fjórða hundruð iðkenda og er ört stækkandi félag. Að vera komin á þetta stig að framkvæmdir eru að hefjast eru afar gleðileg tíðindi fyrir bæjarfélagið og erum við í skýjunum að þetta sé loksins að gerast eftir mikinn undirbúning og vinnu starfsfólks bæjarins og fimleikafélagsins."  segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00