Sjómannadagurinn á Akranesi
Dagskrá Sjómannadagsins á Akranesi, sunnudaginn 7. júní er eftirfarandi:
Kl. 11 - Sjómannadagsmessa. Blómsveigur lagður að sjómanninum á Akratorgi að lokinni athöfn.
Kl. 11 - Sjósund með Sjósundsfélaginu. Farið frá Jaðarsbakkalaug niður að sjó. Nýliðar sérstaklega velkomnir. Konfekt í potti að sundi loknu.
Kl. 12 - Skökkin við Akratorg og Garðakaffi á Safnasvæðinu verða með sjávarréttaþema í hádeginu.
Kl. 12 - Sundfélag Akraness heldur stakkasundkeppni í Jaðarsbakkalaug. Keppnin stendur til kl. 14, allir geta tekið þátt. Skráning og stakkar á staðnum.
Kl. 13 - Eldsmiðakeppni á Safnasvæðinu. Keppnin stendur til kl. 16 og allir hjartanlega velkomnir að fylgjast með.
Kl. 13:30 - Kaffisala í Jónsbúð á vegum Slysavarnafélagsins Líf. Opið til kl. 16:30 og allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 13:30 - Fiskmarkaður Íslands opnar fyrir almenning. Úrval fiska til sýnis!
Kl. 14 - Andlitsmálun í boði Verkalýðsfélags Akraness og Akraneskaupstaðar í Jónsbúð. Allir krakkar velkomnir!
Kl. 14 - Sirkus Íslands gefur blöðrur fyrir utan Jónsbúð í skemmtilegum útfærslum. Þau verða á staðnum til kl. 16.
Kl. 15 - Keppni í sjómanni í Jónsbúð undir styrkri stjórn Ólafs Adolfssonar. Verðlaun veitt fyrir ,,Sjómanninn 2015".
Kl. 16 - Bíósýning í Bíóhöllinni. Akraneskaupstaður og Verkalýðsfélag Akraness bjóða á myndina Pitch Perfect 2. Athugið, takmarkað sætapláss.
Kl. 19 - A Joyful Noise, tónleikar Kanadísks kórs í Vinaminni.