Lokið - Sorphirða og rekstur á móttökustöð Gámu á Akranesi 2017-2022
24.05.2017
Útboð
Lokið.
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili, rekstur á móttökustöð Gámu, og flutning sorps. Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Helstu magntölur:
- Sorpílát 4.000 stk
- Sorp frá heimilum 1.400 tonn/ári
- Sorp frá móttökustöð 2.800 tonn/ári
Verktími er frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2022. Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, með ósk þar um, þar sem fram kemur nafn, netfang og símanúmer bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranes, fimmtudaginn 6. júlí 2017 kl. 11.00.