Störf við liðveislu laus til umsóknar
Um er að ræða hlutastörf í liðveislu með fötluðum börnum / unglingum. Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 20 ára og hafi þekkingu á málefnum fatlaðra barna og/eða reynslu af vinnu með börnum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf og hafi aðgang að bíl.
Vinnustundir eru á bilinu 8-30 klst. á mánuði og er að öðru jöfnu seinnipart dags eða um helgar þannig að starfið hentar vel t.d. háskólanemum. Launakjör eru skv. kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til þess að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2015. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að skila inn umsókn í þjónustuver á 1. hæð að Stillholti 16-18.
Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Andrésdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi í tölvupósti eða í síma 433-1000.