Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2021 - opnað fyrir umsóknir
27.09.2021
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála.
Hér er sótt um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2021. Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur, sem nálgast má hér.