Fara í efni  

Styrkur frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri með viðurkenninguna
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri með viðurkenninguna

Snemma árs 2018 sótti Akraneskaupstaður um styrk til Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til uppsetningar á opnu háhraða þráðlausu neti víðsvegar um Akranes. Undir lok þess árs var kunngjört að kaupstaðurinn hlyti 15.000 evra styrk til verkefnisins. Nú í ár hefur verið komið upp sendum við vinsælustu ferðamannastaði kaupstaðarins og íþróttahúsin tvö. Íbúar og gestir geta því nýtt sér ókeypis háhraða þráðlaust net á þeim stöðum og ber netið heitið wifi4eu.

Akraneskaupstaður er með fyrstu sveitarfélögum á Íslandi til að setja upp slíkt net en Reykjavíkurborg og Sveitarfélagið Skagafjörður hlutu styrk til samskonar verkefna á sama tíma. Það er von bæjarins að netið nýtist bæjarbúum sem og gestum bæjarins með sem bestum hætti.

Nánari upplýsingar um WiFi4EU verkefnið má nálgast hér (á ensku).


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00