Suðurgata - lokun götu
10.12.2021
Götulokun Suðurgötu
Vegna veituframkvæmda verður Suðurgata lokuð milli efri gatnamóta við Mánabraut um og yfir gatnamót Merkigerðis. Því verður Suðurgata ekki vegtenging milli bæjarhluta, á meðan á þessum framkvæmdum stendur. Suðurgata verður botnlangagata frá Skagabraut að Merkigerði, ekki verður hægt að fara um gatnamót Merkigerðis. Áætlað er að fyrsta áfanga við verkið hefjist 13.12.2021 og verði lokið í febrúar á næsta ári. Næsti áfangi við veituframkvæmdir við Suðurgötu er svo frá Merkigerði í átt að Skagabraut. Suðurgata verður því lokuð sem vegtenging milli bæjarhluta fram á næsta vor.
Skipulags- og umhverfissvið
Akraneskaupstaðar