Sumaráætlun Strætó á Vesturlandi
03.06.2015
Vakin er athygli á því að sumaráætlun Strætó tekur gildi þann 7. júní n.k. fyrir ferðir á Vestur- og Norðurlandi. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Leið 57 – Keyrir tvær ferðir til og frá Akureyri alla daga, einnig á laugardögum.
- Leið 58 – Keyrir tvær ferðir á dag alla daga.
- Leið 81 – Keyrir einungis mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga.
- Leið 82 – Keyrir alla daga og í sumum ferðum til Arnarstapa líkt og sumarið 2014.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Strætó eða í síma 540 2700.