Sumaropnun Byggðasafnsins í Görðum og tjaldsvæðisins
Undirbúningur ferðasumarins á Akranesi er í fullum gangi um þessar mundir. Unnið er að endurgerð og prentun götukorts og ferðabæklings um Akranes. Einnig eru svæði eins og tjaldsvæðið, byggðasafnið og upplýsingamiðstöðin byrjuð að undirbúa opnun. Á tjaldsvæðinu er verið að taka þjónustuhúsin í gegn, endurnýja sturtur og klæðningu að innan. Byggðasafnið verður með fasta leiðsögn alla daga og er að undirbúa samning við nýja rekstraraðila á Garðakaffi. Upplýsingamiðstöðin verður áfram í Landsbankahúsinu svokallaða en þar er einnig stefnt að því að opna sýningu safnara á Akranesi undir umsjón Kristbjargar Traustadóttur. Hilmar Sigvaldason vitavörður tekur sumarvaktirnar í Akranesvita og verða þar skemmtilegir tónleikar alla virka daga ásamt listsýningum. Í sumar mun vera starfandi svokallað sumarteymi sem sinnir vöktum á byggðasafni, tjaldsvæði, Akranesvita og upplýsingamiðstöð. Sumarteymið mun taka vel og fagnandi á móti gestum og gangandi.
Opnunartímar í sumar á eftirfarandi stöðum er svohljóðandi:
- Upplýsingamiðstöð Akraness er opin frá 17. maí til 15. september
- Tjaldsvæðið í Kalmansvík er opið frá 13. maí til 15. september
- Byggðasafnið í Görðum er opið frá 13. maí til 15. september
- Akranesviti er opinn frá 1. júní til 31. ágúst
Minnum á nánari upplýsingar á www.visitakranes.is og á www.facebook.com/Visitakranes og netfangið info@akranes.is