Tilkynning til fasteignaeigenda á Akranesi
06.06.2019
Frá og með 15. júní næstkomandi mun Akraneskaupstaður hætta póstsendingu á greiðsluseðlum vegna fasteignagjalda. Fasteignaeigendur geta í gegnum íbúagátt Akraness (HÉR) séð upphæðir og gjalddaga á álagningarseðli ásamt færsluyfirliti.
Hægt er að óska sérstaklega eftir sendingu greiðsluseðla með því að hafa samband við þjónustuver í síma 433 1000 en Akraneskaupstaður hvetur íbúa eindregið til að nota rafrænar leiðir.
Þessi ákvörðun er í takt við stefnu Akraneskaupstaðar um að minnka pappírsnotkun og undanfarin ár hefur prentun greiðsluseðla minnkað verulega.