Tilkynning um flutning bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar
07.09.2021
Bæjarskrifstofa Akraneskaupstaðar flytur aðsetur og tekur til starfa á Dalbraut 4 frá og með mánudeginum 13. september. Gengið er inn í þjónustuver frá Dalbraut.
Daganna 8.-10. september n.k. verður skrifstofan lokuð vegna flutninganna en aðalnúmer bæjarins 433 1000 er opið á venjulegum opnunartíma. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.