Deiliskipulagi lokið - breytingu deiliskipulags Smiðjuvalla á Akranesi
Uppfært 3. september 2015: Deiliskipulag Smiðjuvalla er lokið með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðind þann 27. mars 2015.
Uppfært 17. mars 2015: Kynningarferli að tillögum um breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla lauk 27. febrúar sl. Engar athugasemdir bárust. Bæjarstjórn Akraness samþykkti deiliskipulagið 10. mars og bíður nú skipulagið birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla, samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til lóðanna Kalmansvalla 6 og Smiðjuvalla 3. Um er að ræða að skipta lóð Smiðjuvalla 3 og stækka lóð nr. 6 við Kalmansvelli, nýtingarhlutfall lóðanna er óbreytt eða 0,5. Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18 frá og með miðvikudeginum 21. janúar til og með föstudeginum 27. febrúar 2015.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með föstudeginum 27. febrúar 2015. Skila skal athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið akranes@akranes.is
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi