Tillögur um skipulag Sementsreits
Tillögur að skipulagi á Sementsreitum svokallaða voru kynntar í gær, þann 22 október, á opnum fundi í Tónbergi. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri setti fundinn og Rakel Óskarsdóttir formaður starfshóps um Sementsreit fór yfir vinnu hópsins og hvað framundan væri. Í starfshópnum voru einnig Dagný Jónsdóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir og með hópnum unnu Sigurður Páll Harðarson og Hildur Bjarnadóttir á skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar.
Þrjár arkitektastofur kynntu tillögur sínar en það voru Kanon, Ask og Landmótun. Í framhaldi af kynningum þeirra var boðið upp á léttan kvöldverð áður en fundargestum var boðin þátttaka í vinnuhópum þar sem farið var í gegnum spurningar varðandi tillögurnar. Myndir frá fundinum smá skoða hér.
Hér fyrir neðan er hægt skoða tillögur sem fram komu á fundinum:
Kynning Kanon arkitekta Kynning Ask arkitekta Kynning Landmótunar