Tilnefningar til bæjarlistamanns Akraness 2015
07.04.2015
Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar ákvað á 11. fundi sínum 31. mars sl. að opna fyrir tilnefningar og er þar almenningi gefinn kostur á að taka þátt í að tilnefna næsta bæjarlistamann Akraness.
Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tilnefningar og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní nk. við hátíðlega athöfn. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann, en reglurnar má sjá hér. Tilnefningarfrestur er til og með 15. maí nk.