Tímabundin breyting á klefaskipan sundlaugar meðan á endurbótum stendur
11.12.2020
Ágætu bæjarbúar!
Endurbætur standa nú yfir á búningsklefum fyrir Jaðarsbakkalaug. Sundlaugin opnar fyrir almenning mánudaginn 14. desember en vegna framkvæmdanna sem nú standa yfir á klefunum þurfum við að gera breytingar á klefaskipan. Breytingin er eftirfarandi:
Karlar nota sundlaugarklefann til vinstri (sem hefur verið notaður sem kvennaklefi).
Konur nota klefa inn í Vallarhúsi (klefar sem annars eru notaðir fyrir knattspyrnuhópa), fyrsti klefi til hægri inni á ganginum.