Truflun á útsendingu frá fundi bæjarstjórnar
13.01.2016
Truflun varð á útsendingu frá 1225 fundi bæjarstjórnar í kvöld að afloknu fundarhléi og er beðist velvirðingar á því. Engar umræður voru á fundinum eftir hléið en tillaga Ingibjargar Pálmadóttur, varðandi lið 3 í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 29. desember 2015 samþykkt samhljóða sbr. fundargerð bæjarstjórnar.