Umhverfisviðurkenningar 2021
27.10.2021
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar 2021 voru veittar fimmtudaginn 21. október.
Viðurkenningarnar eru veittar í fjórum flokkum að þessu sinni.
- Falleg einbýlishúsalóð, Vilborg Helgadóttir og Jón Þór Þorgeirsson Hólmaflöt 8 fyrir vel heppnaða hönnun á lóð með fjölbreyttum gróðri.
- Falleg fjölbýlishúsalóð, Íbúar á Akralundi 2, fyrir snyrtilega aðkomu að húsinu og góðan frágang á lóð.
- Tré ársins, ilmreynir á Jörundarholti 133, Vigdís Elfa Jónsdóttir og Hjálmur Dór Hjálmsson tóku við viðurkenningunni fyrir þetta gróskumikla tré.
- Vel heppnaðar endurbætur Sigurður Már Jónsson og Sigríður Hallgrímsdóttir Krókatún 8.
Einnig voru veittar tvær eftirfarandi viðurkenningar.
- Hvatningarviðurkenning, Viðar Sigurðsson og aðrir eigendur fyrir Deildartún 4 fyrir vel heppnaðar endurbætur á sérstaklega fallegu gömlu húsi.
- Samfélagsviðurkenning, hana hlaut Helga Oliversdóttir sem á covd tímum fór með kaffibollann sinn út og drakk kaffi ýmist ein eða með öðrum á mismunandi stöðum í bænum og deildi myndum og kveðju á samfélagsmiðlum. Skemmtilegt verkefni sem var bæði hlýlegt og uppörvandi.