Uppfært: Breyting á opnunartíma í sundlaugar Akraneskaupstaðar á virkum dögum
06.10.2020
COVID19
Ákveðið hefur verið að sundlaugar Akraneskaupstaðar, Bjarnalaug og sundlaugin við Jaðarsbakka, verði lokaðar almenningi frá kl. 8:00 á meðan sundkennsla nemenda fer fram a.m.k. næstu tvær vikurnar á meðan óvissa ríkir vegna Covid-19. Sundlaugin við Jaðarsbakka verður opin fyrir almenning á milli 6:00-8:00 og svo eins og greint er frá hér fyrir neðan. Bjarnalaug er lokuð fyrir almenning til kl. 14:00 virka daga.
Opnunartími sundlaugar við Jaðarsbakka:
- Mánudag-miðvikudag: 6:00-8:00 og frá 14:00 fram að lokun.
- Fimmtudag og föstudag: 6:00-8:00 og frá kl. 12:00 fram að lokun.
Fréttin var uppfærð 7.10.2020 kl. 10:20