Úrgangsmál yfir hátíðarnar
Í kringum jól og áramót fellur oft til plast og pappi í meira magni en vant er. Hér verður farið yfir nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar kemur að úrgangsmálum. Sorphirða og söfnun endurvinnsluefna fór fram í síðustu viku og verða því næstu losanir við heimilin í næstu viku og má gera ráð fyrir að söfnunin hefjist á miðvikudeginum 27.desember og standi yfir fram á laugardag 30.desember.
Á grenndarstöðum okkar við Bíóhöllina, Bókasafnið og Byggðasafnið, er gámur fyrir plast og annar fyrir pappa sem hægt er að nýta ef endurvinnslutunnur fyrir utan heimilin fyllast.
Þá hafa Terra og Orkan tekið höndum saman og verða með umbúðagáma á milli hátíða á fimm stöðum á landinu og þar með talið við Orkustöðina hér á Akranesi við Skagabraut.
Hvernig á að flokka það sem fellur til um jólin?
Mandarínukassar 👉 Umbúðartimbur
Plastumbúðir 👉 Plast
Pakkabönd 👉 Blandaður úrgangur
Leikföng úr plasti 👉 Blandaður úrgangur
Stjörnuljós (notuð) 👉 Málmur
Jólagjafapappír 👉 Pappír
Jólatré 👉 Trjágreinar
Jólaseríur (ónýtar) 👉 Raftæki
Flugeldar (notaðar) 👉 Blandaður úrgangur
Flugeldar (ónotaðar) 👉 Spilliefni
Fleiri góð ráð má nálgast á vef þjónustuaðila Akraneskaupstaðar, Úrgangur tengdur jólamánuðinum | Terra - Skiljum ekkert eftir
Munið, jólapappír, pakkabönd og annað pakkaskraut má oft endurnýta ár eftir ár.
Þá er einnig hægt að fara með endurvinnsluefni í rétta gáma í Gámu í Höfðaseli.
Viljum við minna á opnunartíma í Gámu:
Föstudagur 22. desember | 10:00-12:00 og 13:00-18:00 |
Þorláksmessa | lokað |
Aðfangadagur | lokað |
Jóladagur | lokað |
Annar í jólum | lokað |
Miðvikudagur 27. desember | 10:00-12:00 og 13:00-18:00 |
Fimmtudagur 28. desember | 10:00-12:00 og 13:00-18:00 |
Föstudagur 29. desember | 10:00-12:00 og 13:00-18:00 |
Laugardagur 30. desember | 10:00-14:00 |
Gamlársdagur | lokað |
Nýársdagur | lokað |
Almennar upplýsingar um úrgangsmál á Akranesi er að finna á heimasíðunni.