Utanríkisráðherra Færeyja heimsótti Akranes
Laugardaginn 30. janúar kom Poul Michelsen utanríkisráðherra Færeyja í heimsókn á Akranes. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs tóku á móti Michelsen ásamt Gísla Gíslasyni framkvæmdastjóra Faxaflóahafna og stjórnarmanni í Færeysk - íslenska verslunarfélaginu og Gunnari Sigurðssyni fyrrverandi forseta bæjarstjórnar en þeir Poul hafa þekkst í yfir fjörutíu ár. Poul var borgarstjóri í Þorshöfn í 12 ár og á farsælan feril sem íþróttamaður, meðal annars í fótbolta og badminton. Með utanríkisráðherra í för var sendiherra Færeyja á Íslandi, Petur Petersen. Eftir hádegisverðarfund hélt Poul Michelsen ásamt fylgdarliði í heimsókn í fyrirtækið Skagann en fyrirtækið á í miklum viðskiptum við eitt helsta útflutningsfyrirtæki Færeyja í sjávarútvegi.