Fara í efni  

Lokið - Útboð á byggingarrétti á Dalbrautarreit

Útboði er lokið.

Akraneskaupstaður leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á fjórum lóðum á Dalbrautarreit á Akranesi þ.e. lóðunum Dalbraut 4, Dalbraut 6, Þjóðbraut 3 og Þjóðbraut 5. Byggingarréttur á hverri lóð fyrir sig er boðinn til sölu.

Byggingaréttur á þessum 4 lóðum er samtals 11.102 fermetrar í íbúðarhúsnæði, 828 fermetrar í verslun og þjónustu, 1.311 fermetrar í þjónusturými og 4.414 fermetrar fyrir bílakjallara og annað kjallararými.

Akraneskaupstaður hyggst kaupa rými af lóðarhafa að Dalbraut 4, allt að 1.270 fermetra á fyrstu hæð. Ennfremur áskilur Akraneskaupstaður sér rétt til kaupa á allt að 15 íbúðum á lóðunum.

Útboðsgögn verða afhent í þjónustuveri Akraneskaupstaðar. Fyrir þá sem það vilja, verða útboðsgögn afhent á stafrænu formi með því að viðkomandi sendir tölvupóst á netfangið dalbrautarreitur@akranes.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.

Tilboð verða opnuð í skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranes, fimmtudaginn 3. maí 2018 kl.11.00.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00