Útboð á ræstingu
17.08.2015
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í ræstingu fjögurra leikskóla á Akranesi svo og almenningsbókasafns kaupstaðarins. Verktími er frá 1. nóvember 2015 til 31. október 2018.
Útboðsgögn (á geisladiski) verða til afhendingar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar frá og með 10. ágúst næstkomandi án endurgjalds. Hægt er að fá gögn afhent á pappír fyrir kr. 3.000.
Tilboð verða opnuð í fundarherbergi skipulags- og umhverfissviðs þriðjudaginn 29. september næstkomandi kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.