Útboð byggingarétts á Sementsreit
08.10.2021
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í byggingarétt á 6 lóðum á Sementsreit á Akranesi.
Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á 3 hæðum auk bílakjallara á 4 lóðum á uppbyggingarreit D og á 2 lóðum á uppbyggingarreit C. Öllum lóðunum verður úthlutað til sama aðila.
Nokkrar stærðir í verkinu:
- Lóðastærðir 9.450 m²
- Byggingarréttur íbúða 11.450 m²
- Byggingarréttur kjallara og bílakjallara 7.900 m²
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá mánudeginum 11. október 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits, HÉR.
Tilboðum ásamt tillögum skal skilað fyrir kl. 12:00 föstudaginn 3. desember 2021 í afgreiðslu Mannvits, Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi. Ekki verður haldinn opnunarfundur aðgengilegur bjóðendum, niðurstöður útboðs verða sendar bjóðendum.