Úthlutun styrkja úr viðhaldssjóði fasteigna
Þann 12. júní var formlega úthlutað styrkjum úr viðhaldssjóði fasteigna. Þetta er í annað sinn sem Akraneskaupstaður veitir styrki af þessum toga og í ár voru það ellefu aðilar sem fengu úthlutað styrkjum til viðhaldsverkefna. Heildarupphæð þeirra styrkja er kr. 9.100.000. Það var bæjarráð sem samþykkti þann 26. maí sl., að fengnum tillögum skipulags- og umhverfisráðs að eigendur eftirtalinna húseigna fengu styrki í ár.
Mánabraut
- Mánabraut 4, kr. 600.000, þakklæðning, efri veggklæðningar og gluggar efri hæðar.
- Mánabraut 6a, kr. 400.000, sprungufylla hús að utan og þak á bílskúr.
- Mánabraut 11, kr. 1.200.000, endurnýjun glugga, hurðaeinangrun og múrað þak endurnýjað.
Suðurgata
- Suðurgata 65, kr. 1.200.000, þrif, sprunguviðgerðir, málun og gluggaskipti.
- Suðurgata 71, kr. 600.000, múrviðgerðir og málun.
- Suðurgata 78, kr. 1.200.000, þakviðgerðir og járnklæðning.
- Suðurgata 80, kr. 1.000.000, hreinsun og málning veggja og þaks.
- Suðurgata 83, kr. 600.000, gluggaskipti, steypuviðgerðir og málun.
- Suðurgata 109, kr. 500.000, endurbyggja þakkant, múrviðgerðir og gluggaskipti.
Sunnubraut
- Sunnubraut 19, kr. 600.000, múrviðgerðir, málun og gangstígur.
- Sunnubraut 30, kr. 1.200.000, endurnýjun á þaki og þakkanti.
Styrkupphæðir voru áætlaðar m.a. eftir mismikilli viðhaldsþörf í tvo flokka, annarsvegar kr. 600 þúsund í lægri flokk og kr. 1.200 þúsund í hærri flokk. Styrkupphæðir voru þó aldrei hærri en 50% af áætlaðri viðhaldsþörf viðkomandi fasteignar. Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn þann 31. mars síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 23. apríl. Hlutverk sjóðsins er að veita styrk til endurgerða eða viðgerða á ytra byrði húsnæðis eða öðrum mannvirkjum á Akranesi til að bæta ásýnd ákveðinna svæða í umdæmi Akraneskaupstaðar. Þeir sem vilja kynna sér reglur sjóðsins geta gert það hér.
Akraneskaupstaðar sendir hamingjusóskir til þeirra fasteignareigenda sem fengu úthlutun í ár.