Vel heppnað rithöfundakvöld á Vökudögum
04.11.2016
Mánudagskvöldið 31. október var rithöfundakvöld haldið á Bókasafni Akraness. Sigurbjörg Þrastardóttir stýrði dagskrá kvöldsins sem að þessu sinni bar heitið Við leikum oss með örvar og endurskrifum net, sem er skírskotun í titla þeirra verka sem kynnt voru á kvöldinu. Þeir sem komu fram og lásu úr verkum sínum voru:
- Auður Ava Ólafsdóttir; Ör
- Ásmundur Ólafsson; Á Akranesi
- Lilja Sigurðardóttir; Netið
- Orri Harðarson; Endurfundir
- Pétur Gunnarsson; Skriftir
- Sigurbjörg Þrastardóttir; Óttaslegni trompetleikarinn og aðrar sögur
Viðburðurinn var afar vel sóttur og fjöldi gesta vel á annað hundraðið.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem teknar hafa verið á Vökudögum í ár.