Viðgerð á listaverkinu Pýramídísk abstraksjón
29.04.2016
Um þessar mundir vinnur Ástþór Helgason að viðhaldi listaverks Ásmundar Sveinssonar, Pýramídísk abstraksjón. Þetta glæsilega listaverk, sem er staðsett í holtinu á horni Stillholts og Kirkjubrautar, var sett upp á Akranesi á árinu 1975. Það voru Kvenfélag Akraness, Menningarsjóður Akraneskaupstaðar og Sementsverksmiðja ríkisins sem stóðu straum af kostnaði. Vinnan nú er unnin samkvæmt viðhaldsáætlun listaverka hjá Akraneskaupstað. Áætluð verklok eru fyrir miðjan maí ef veðurskilyrði verða í lagi. Á vef ljósmyndasafns Akraness má sjá skemmtilegar myndir af listaverkinu frá ýmsum sjónarhornum á ýmsum tímum, sjón er sögu ríkari