Vinningshafi í eldvarnargetraun
01.03.2017
Sigurður Pétur Bjarkason nemandi í þriðja bekk í Brekkubæjarskóla fékk viðurkenningu fyrir eldvarnargetraun sem Landsamband slökkviliðsmanna og sjúkraflutningsmanna stendur fyrir árlega. Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri fór og afhenti Sigurði viðurkenningarskjal ásamt reykskynjara og fleiri skemmtilegum hlutum þann 23. febrúar síðastliðinn. Þann dag var einmitt rýmingaræfing á vegum skólans.
Þriðji bekkur beggja grunnskólanna á Akranesi heimsótti slökkviliðsstöðina í desember síðastliðnum og fékk þar kynningu á starfsemi slökkviliðsins ásamt almennri kynningu á eldvörnum. Þessi liður er hluti af árlegu eldvarnarátaki landsambandsins sem var haldið í 22. skiptið á síðastliðnu ári.