Virkjum hæfileikana – alla hæfileikana
Guðrún Gísladóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Vesturlandi, Þórdís Ingibjartsdóttir atvinnumálafulltrúi frá Fjöliðjunni og Thelma Sigurbjörnsdóttir forstöðumaður Starfsendurhæfingar Vesturlands mættu á skrifstofu bæjarstjóra í dag og afhentu Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra grip sem er til þess gerður að minna á verkefnið „Virkjum hæfileikana – alla hæfileikana“. Verkefnið snýst um að skapa störf fyrir atvinnuleitendur með skerta starfsgetu. Með þeim Guðrúnu, Þórdísi og Thelmu voru einnig Böðvar Guðmundsson sem starfar í Leikskólanum Akraseli og Borghildur Ósk Bjarnadóttir sem starfar í Fjöliðjunni en þau hafa bæði tekið þátt í verkefninu. Um er að ræða samstarf Vinnumálastofnunar, Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálp. Í verkefninu felast möguleikar á stuðningi við ráðningu á starfsfólki frá starfsráðgjöfum Vinnumálastofnunar.
Hægt er að lesa til um verkefnið á fésbókarsíðu þess, Virkjum hæfileikana - alla hæfileikana