Fara í efni  

Hunda- og kattaeigendur athugið

Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi.
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 8. október

1300. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. október kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Lesa meira

Undirritun samnings um Heilsueflandi samfélag

Þann 1. október síðastliðinn undirrituðu Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri og Alma D. Möller, landlæknir, samning um innleiðingu Heilsueflandi samfélags á Akranesi. Með samningnum skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags á Akranesi í samráði við Embætti landlæknis og er 29. sveitarfélag landsins sem leggur í þessa vegferð.
Lesa meira

Óskað eftir tillögum íbúa um nafn á frístundamiðstöðinni við Garðavöll

Bæjarráð Akraness fól Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra að koma með hugmyndir að nafni fyrir frístundamiðstöðina við Garðavöll á fundi sínum í lok ágúst síðastliðinn.
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 24. september

1299. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 24. september kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Lesa meira

Heilsuefling 60 ára og eldri

Heilsuefling verður í boði fyrir 60 ára og eldri á Jaðarsbökkum og hefst fimmtudaginn 19. sept. n.k.
Lesa meira

Íbúaþing um lærdómssamfélagið Akranes

Þann 2. október næstkomandi verður haldið íbúaþing sem hefur fengið heitið Lærdómssamfélagið Akranes og verður haldið í húsakynnum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þingið mun fjalla um mennta- og frístundamál og hvað felst í því að búa í lærdómssamfélagi.
Lesa meira

Nýjar upplýsingar í kortasjá Akraneskaupstaðar

Nú er hægt að hoppa aftur í tímann og skoða eldri loftmyndir í kortasjá Akraneskaupstaðar. Allar myndir sem Loftmyndir ehf. hafa tekið eru aðgengilega með þessum hætti. Hægt er að bera saman hvaða tvö ár sem er, þar sem myndir eru til.
Lesa meira

Framkvæmdir frá Garðabraut að Þjóðbraut

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka: Þriðjudag 17. september er stefnt að malbika Innesveg á Akranesi, frá Garðabraut að Þjóðbraut. Götunni verður lokað og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp mynd um lokunarplan. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 20:00.
Lesa meira

Breyting á vetraropnun Guðlaugar

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum þann 12. september síðastliðinn tillögu um breytingu á opnunartíma Guðlaugar á Langasandi yfir veturinn. Breyting fellst fyrst og fremst í lengri opnun um helgar en vetraropnun verður sem hér segir:
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00