Laust starf deildarstjóra skóladagvistar í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli auglýsir laust starf deildarstjóra skóladagsvistar. Um er að ræða 75% stöðu sem er laus frá 1. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og viðkomandi stéttarfélags.
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 440 talsins, en starfsmenn tæplega áttatíu. Skólastefna í Brekkubæjarskóla ber heitið „Góður og fróður“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgð á starfsemi skóladagvistar fyrir 6-9 ára börn
- Skipulagning starfsins í samráði við börn og starfsfólk
- Samskipti og samstarf við aðila skólasamfélagsins á Akranesi
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn í samráði við skólastjóra
- Umsjón með starfsmannamálum
- Umsjón og ábyrgð með rekstri skóladagvistar í samráði við skólastjóra
Menntun og hæfniskröfur
- Háskólapróf á uppeldissviði, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði, eða sambærileg menntun
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
- Áhugi á frístundastarfi með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæði, skipulags- og stjórnunarhæfileikar
- Reynsla af stjórnun er kostur
Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 27. júní n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@brekkubaejarskoli.is eða í síma 433-1300.