Átak til atvinnusköpunar
08.09.2015
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnis:
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja
Sérstök áhersla er lögð á
- Verkefni sem skapa ný störf
- Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
- Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
- Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkað
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og tækjabúnaði.
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.is. Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á hádegi þann 28. september.
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is