Bæjarstjórnarfundur 23. janúar
19.01.2018
1267. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 23. janúar næstkomandi kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Dagskrá fundarins má nálgast hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Garðakaffi, laugardaginn 20. janúar kl. 10.30.
- Björt framtíð að Smáraflöt 1, sunnudaginn 21. janúar kl. 20.00.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 20. janúar kl. 11.00.
- Frjálsir með framsókn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, mánudaginn 22. janúar kl. 20.00