Lokið - Fasteignafélag Akraneskaupstaðar óskar eftir tilboðum í Reiðhöll
Óskað eftir tilboðum í verkið „Límtrésburðarvirki, klæðningareiningar og ytri frágangur“.
Fasteignafélag Akraneskaupstaðar óskar eftir tilboðum í Reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi. „Límtrésburðarvirki, klæðningareiningar og ytri frágangur“.
Verkið felst í hönnun og afhendingu á límtrésburðarvirki, festingum og tilheyrandi aukabúnaði til samsetningar og frágangi á burðarvirki og ytra byrði byggingarinnar. Verklok 1.október 2020.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi Akraness, Stillholti 16-18, 300 Akranes, þriðjudaginn 7. apríl 2020 kl. 12:00