Heitavatnslaust í hluta bæjarins vegna tengingar á stofnlögn hitaveitu
13.12.2018
Tilkynning frá Orkuveitu Reykjavíkur: Vegna tengingar á stofnlögn hitaveitu fimmtudaginn 13. desember 2018 í hringtorgi við Esjubraut / Kalmansbraut á Akranesi verður heitavatnslaust í hluta bæjarins og lækkaður þrýstingur í hluta bæjarins.
Reiknað er með að rekstrartruflun standi frá kl. 9:00 til kl. 20:00. Á teikningum hér meðfylgjandi sjást þau hús sem verða annarsvegar heitavatnslaus og hins vegar lækkaður þrýstingur á heitu vatni.