Fara í efni  

Hreystigarður fyrir fullorðna uppsettur á Langasandi árið 2019

Tillögur að tækjum.
Tillögur að tækjum.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 4. október síðastliðinn að settur yrði upp hreystigarður fyrir fullorðna sem staðsettur yrði á Langasandssvæðinu, fyrir neðan Akraneshöllina þar sem m.a. ærslabelgurinn er staðsettur. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta hreystitækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar. Jafnframt verður sett upp upplýsingaskilti við garðinn sem sýnir m.a. hvernig unnt sé að nota tækin til fjölbreyttrar líkamsræktar. Heildarkostnaður framkvæmdarinnar nemur um 6 m.kr.

Tækin sem um ræðir koma frá fyrirtækinu Norwell og eru sérstaklega hugsuð sem tæki til heilsueflingar utandyra. Norwell hefur m.a. sett um sambærilega garða bæði í Reykjavík og Kópavogi.  Norwell er danskt fyrirtæki sem stofnað var árið 2007. Tækin eru vottuð og eru pólýhúðuð með hertu gúmmí sem kemur í veg að þau ryðgi eða festist. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00