Hunda- og kattaeigendur athugið
Mánudaginn 19. október næstkomandi verður hunda- og kattahreinsun í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina og er ormahreinsun hunda og katta innifalin í leyfisgjaldi. Hundahreinsun verður frá kl. 16.30-19.30 og kattahreinsun frá kl. 20.00-22.00. Seinni hreinsun verður laugardaginn 7. nóvember.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. greiða þarf með peningum):
- Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 3.000.
- Ófrjósemissprauta, verð kr. 2.500 - 4.000.
- Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.
- Perlutex ófrjósemistöflur í hunda og ketti, verð kr. 2.000
- Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum. Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.