Fara í efni  

Hunda- og kattahreinsun 2021

Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 94/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega.

Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina og er ormahreinsun hunda og katta innifalin í leyfisgjaldi.

Hundahreinsun verður mánudaginnn 18. október frá kl. 13- 20

Kattahreinsun verður þriðjudaginn 19. október frá kl. 13 - 20

Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin)

Dýralæknir býður einnig upp á eftirfarandi bólusetningar:

  • Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 4.000
  • Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500
  • Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000-7.000, fer eftir þyngd
  • Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 4.000

Athugið að greiða þarf með peningum - enginn posi verður á staðnum.

Seinni hreinsun verður laugardaginn 13. nóvember

Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00