Innritun í leikskóla á Akranesi haustið 2022
28.03.2022
Samþykkt var á fundi skóla- og frístundaráðs þann 22. mars 2022 að börnum sem eru fædd frá 1. júní 2020 - 31. júlí 2021 verði boðið leikskólapláss á komandi skólaári.
Innritun barna í leikskóla á Akranesi er nú lokið. Foreldrar rúmlega 100 barna hafa fengið tölvupóst um innritun og eru þau beðin um að staðfesta leikskólaplássið við leikskólastjóra innan 7 daga. Leikskólastjóri gefur einnig nánari upplýsingar um leikskólann, hvenær vistun getur átt sér stað og hvernig aðlögunartíma verður háttað.