Írskir dagar hefjast á fimmtudaginn
28.06.2017
Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir í 18 sinn dagana 29. júní til 2. júlí næstkomandi. Hátíðin hefur fest sig í sessi í gegnum árin og er einn af hápunktum sumarsins á Akranesi. Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár enda fjölmargir viðburðir orðnir fastir liðir hjá íbúum sem og gestum. Líkt og önnur ár eru keppnir eins og rauðhærðasti Íslendingurinn og best skreytta húsið eða írskasta húsið og í verðlaun í báðum flokkum eru ferðir fyrir tvo til Írlands í boði Gaman ferða.