Jaðarsbakkalaug lokuð 3. - 4. júní
29.05.2017
Jaðarsbakkalaug er lokuð dagana 3.- 4. júní næstkomandi vegna Akranesleika Sundfélags Akraness. Þá er einnig aðeins opið til kl. 13:00 þann 2. júní. Þreksalir verða opnir meðan leikarnir standa yfir, en búningsaðstaða verður lokuð.
Vakin er athygli á því að Bjarnalaug er opin þann 3. júní frá kl. 10-16 og á annan í hvítasunnu þann 5. júní er opið á Jaðarsbökkum frá kl. 9-18.